15.05.2012 16:44

Síðustu æfingar

Þriðjudaginn 22.maí verður síðasta blakæfingin hjá okkur, allir að mæta hressir og kátir, gæti eitthvað spennandi gerst.

Kveðja
Elsa Sigrún.

Áfram Leiknir

02.05.2012 16:56

Öldungur, Trölli 2012

Nú er öldungamótinu á blaki lokið árið 2012. Þetta var frábær helgi og allir gerðu sitt besta. Mikið gaman og mikið fjör. Myndir koma fljótlega inn í albúm.



Leiknir 5. deild karla, urðu í 1. sæti en fengu engin verðlaun þar sem þeir spiluðu sem gestalið. Fengu samt smá sárabót frá kvennaliðunum.



Leiknir 7. deild kvenna, varð í 5. sæti í deildinni.



Leiknir 9. deild kvenna varð í síðasta sæti í deildinni.



Sindri frá Höfn, 5. deild kvenna. Tveir leikmenn úr Leikni "seldir dýrum dómi". Sindri varð í neðsta sæti í sinni deild.

21.04.2012 12:25

Tölli 2012

Nú er Trölli alveg að skella á og allir spenntir. Komið leikjaplan inn í skrár, klikkið hér og skoðið.



Ungar og sætar.

16.04.2012 20:06

Framundan í blakinu

Dagskráin framundan :

Þriðjudagur 17. apríl: Valur kemur í heimsókn og spilar við liðið í 7.deild og karla.

Fimmtudagur 19.apríl: venjuleg æfing hjá öllum.

Laugardagur 21.apríl: Höttur 7.deild kemur í heimsókn.

Þriðjudagur 24.apríl: Höttur 9.deild kemur í heimsókn.

Fimmtudagur 26.apríl: síðasta æfing fyrir öldung.

Ég á síðan eftir að finna tíma til að hitta Þróttara fyrir öll lið.

Verum dugleg að mæta þessa síðustu æfingar.

Kveðja

Elsa

24.03.2012 00:24

Trölli 2012

Jæja þá fer öldungur að skella á eða í lok apríl svo ekki er seinna vænna en að hífa upp buxurnar, beygja sig í hnjánum og vera mjúkur :-) og ekki gleyma að æfa öldungalagið.
Endilega kíkið Trölla 2012.


  • 1
Flettingar í dag: 2
Gestir í dag: 2
Flettingar í gær: 15
Gestir í gær: 8
Samtals flettingar: 46901
Samtals gestir: 18607
Tölur uppfærðar: 17.5.2012 01:01:31